../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-188
Útg.dags.: 06/16/2023
Útgáfa: 10.0
2.02.01.01 T4 frítt
Almennt
Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
Týroxín (T4) er skjaldkirtilshormón sem gegnir mikilvægu hlutverki við stjórnun efnaskipta líkamans. Myndun og seyting T4 úr skjaldkirtlinum er undir stjórn TSH. Í blóði er lang stærstur hluti T4 (> 99,9%) bundinn plasmapróteinum (TBG, albúmín og transtýretíni). Aðeins lítill hluti (< 0,02%) er ópróteinbundinn, þ.e. frítt T4 (FT4) en sá hluti fer inn í frumur og er líffræðilega virkur. Magn bindipróteina hefur mikil áhrif á heildamagn T4 en ekki FT4. Mæling á magni FT4 gefur því betra mat á skjaldkirtilsstarfsemi heldur en T4.
Helstu ábendingar:
Til að staðfesta grun um skjaldvakaofseytingu (hyperthyroidism) eða skjaldvakabrest (hypothyroidism). Til að fylgja eftir meðferð við skjaldkirtilssjúkdómum.
Mæliaðferð
Mæliaðferð
Electrochemiluminiscence immunoassay "ECLIA" á mælitæki frá Roche (cobas e immunoassay analyzers).
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Gerð og magn sýnis:
Plasma 0,5 ml. Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa
með geli (gul miðja)
Litakóði samkvæmt Greiner.
Geymist 7 daga í kæli og 1 mánuð í frysti.
Mæling er gerð allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
Aldur
p
m
ól/L
> 20 ára
12-22
>11 ára ≤ 20 ára
12,6-21
>6 ára ≤ 11 ára
12,5-21,5
>1 árs ≤ 6 ára
12,3-22,8
>3 mán. ≤ 12 mán.
11,9-25,6
>6 daga ≤ 3 mán.
11,5-28,3
0-6 daga
11-32
Þungaðar konu
r
pm
ól/L
Trimester 1
12,1-19,6
Trimester 2
9,6-17,0
Trimester 3
8,4-15,6
Niðurstöður
Niðurstöður
Truflandi efni:
Bíótín (B7 vítamín) í háum styrk getur valdið truflun, falskri hækkun, í frítt T4 aðferðinni sem verið er að nota á Landspítala (Cobas Roche). Hjá sjúklingum á háum bíótín skömmtum (>5mg/dag) þurfa að líða a.m.k. 8 klst frá síðasta bíótín skammti þar til blóðsýni er tekið. Það sama gildir um fjölvítamín og bætiefni sem innihalda bíótín (fjölvítamín og bætiefni fyrir hár, húð og neglur innihalda oft mikið bíótín).
Túlkun
FT4 skal alltaf túlka samhliða TSH niðurstöðu. Alvarleg veikindi utan skjaldkirtils geta haft áhrif á styrk skjaldkirtilshormóna og það þarf að hafa í huga við túlkun niðurstaðna.
Hækkun:
FT4 er hækkað við ofstarfsemi skjaldkirtils (TSH lágt).
Lækkun:
FT4 e
r lækkað (TSH hækkað ) við vanstarfsemi í sjálfum skjaldkirtli (primer hypothyroidism). Ef
vanstarfsemin á sér rætur í heiladingli/undirstúku þá er FT4 lágt og TSH annað hvort lækkað eða eðlilegt.
Heimildir
Heimildir
Upplýsingableðill FT4 (Free thyroxine), 2022-10, V 4.0. Roche Diagnostics
Reference Intervals for Children and Adults, Elecsys Thyroid Tests, Roche Diagnostics GmbH, 2008.
Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Sixth Edition. Elsevier Saunders, 2018.
Ritstjórn
Ingunn Þorsteinsdóttir
Fjóla Margrét Óskarsdóttir
Guðmundur Sigþórsson
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Ingunn Þorsteinsdóttir
Útgefandi
Ingunn Þorsteinsdóttir
Upp »
Otomatik - 130.208.204.117
CloudFlare DNS
Türk Telekom DNS
Google DNS
Open DNS
OSZAR »