../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rblóð-069
Útg.dags.: 02/22/2022
Útgáfa: 2.0
2.02.01.01 Prótein C
Rannsóknir - Almennt
Rannsóknir - Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
Prótein C er náttúrulegt blóðþynningarefni sem virkjast af trombín-trombómódúlíni. Virkt prótein C (activated protein C, APC) brýtur niður storkuþætti Va og VIIIa og dregur þannig úr hraða storkumyndunar. Prótein S er co-factor sem eykur virkni APC. Minnkuð virkni prótein C leiðir til ofvirkni storkukerfisins og segahneigðar.
Prótein C skortur er ein orsök ættlægrar segahneigðar.
Sýnataka, sending og geymsla
Sýnataka, sending og geymsla
Gerð og magn sýnis:
Blóð tekið í storkuprófsglas sem inniheldur 3,2% natríum sítrat.
Litakóði samkvæmt Greiner.
Sýnatökuglasið verður að vera alveg fullt, glasinu velt vel og sent rannsóknastofu sem allra fyrst.
Ath:
Stasað sem minnst og sjúklingur á alls ekki kreppa og rétta úr hnefa.
Sýnaglas skilið niður í skilvindu við 20°C og 3000 rpm í 10 mínútur. Mælingin er gerð á plasma.
Mælingin skal gerð innan 8 klst frá blóðtöku.
Mæling er gerð allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.
Mælt á rannsóknarkjarna Hringbraut.
Plasma geymist fryst við - 70°C.
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
70-140 U/dl.
Niðurstöður
Niðurstöður
Svar:
U/dl.
Túlkun
Hækkun:
Engin þekkt þýðing.
Lækkun:
Ættlægur prótein C skortur. Prótein C lækkar einnig við lifrarbilun, K-vítamín skort, DIC, warfarin og díkúmaról meðferð, östrógen og L-asparaginasa meðferð.
Heimildir
Heimildir
Ritstjórn
Oddný Ingibjörg Ólafsdóttir
Páll Torfi Önundarson
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Páll Torfi Önundarson
Útgefandi
Sigrún H Pétursdóttir
Upp »
Otomatik - 130.208.204.117
CloudFlare DNS
Türk Telekom DNS
Google DNS
Open DNS
OSZAR »