../
IS
Gæðahandbók
Breytingartillaga
Prenta
Senda
Loka
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-075
Útg.dags.: 01/05/2024
Útgáfa: 8.0
2.02.01.01 Fólat
Almennt
Almennt
Verð:
Sjá
Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar:
Fólat þörf líkamans er mismunandi á mismunandi æviskeiðum. Fæðutegundir sem innihalda mikið fólat eru m. a.: lifur, baunir, hnetur, spínat og annað grænmeti. Skorts gætir fyrst og fremst í vefjum með hraða umsetningu, svo sem í beinmerg og meltingarfærum. Birgðir eru litlar, duga í 3 - 4 mánuði. Án vítamín B12 geta frumur ekki tekið upp og umbreytt metatetrahydrofólati í tertahydrofólat. Við B12 skort er því fólat lækkað í rauðum blóðkornum, en eðlilegt eða hækkað í sermi.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd.
Gerð og magn sýnis:
Sýni tekið fastandi.
Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa
með geli (gul miðja)
Litakóði samkvæmt Greiner.
Sýni geymist tvo tíma við stofuhita, 48 klst við 2-8°C. Það má ekki frysta sýni sem innihalda LiHeparin. Það þarf að verja sýni fyrir ljósi.
Mæling er gerð allan sólarhringinn alla daga.
Viðmiðunarmörk
Viðmiðunarmörk
P-fólat: 6 - 35 nmól/L
Niðurstöður
Niðurstöður
Svar:
Sveiflur í serum fólati koma eftir mismunandi fólatríkar máltíðir.
Truflandi efni:
Hemolýsa truflar mælingu á fólati í sermi, því fólat lekur úr rauðum blóðkornum og veldur hækkun á fólati í sermi.
Bíótín (B7 vítamín) í háum styrk getur valdið truflun, falskri hækkun, í fólat aðferðinni sem verið er að nota á Landspítala (Cobas Roche). Hjá sjúklingum á háum bíótín skömmtum (>5mg/dag) þurfa að líða a.m.k. 8 klst frá síðasta bíótín skammti þar til blóðsýni er tekið. Það sama gildir um fjölvítamín og bætiefni sem innihalda bíótín (fjölvítamín og bætiefni fyrir hár, húð og neglur innihalda oft mikið bíótín).
Túlkun
Lækkun
: Lækkun á fólati sést við aukna fólatþörf (meðganga, aukin framleiðsla rauðra blóðkorna), minnkað frásog, minnkaða neysla eða aukið tap í líkamanum. Methotrexat, trimetoprim og sulfasalazin geta valdið fólatskorti.
Heimildir
Heimildir
Upplýsingableðill Folate, 2013-11, V 11 Roche Diagnostics, 2013.
Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fifth Edition. Elsevier Saunders, 2012
Laurell Klinisk Kemi i Praktisk Medicin, níunda útgáfa. Studentlitteratur. 2012
Ritstjórn
Aldís B Arnardóttir
Ingunn Þorsteinsdóttir
Samþykkjendur
Ábyrgðarmaður
Ísleifur Ólafsson
Útgefandi
Sigrún H Pétursdóttir
Upp »
Otomatik - 130.208.204.117
CloudFlare DNS
Türk Telekom DNS
Google DNS
Open DNS
OSZAR »