../ IS  
Útgefið gæðaskjal: Leiðbeiningar
Skjalnúmer: Rklín-070
Útg.dags.: 06/23/2023
Útgáfa: 6.0
2.02.01.01 Ferritín
Hide details for AlmenntAlmennt
Verð: Sjá Gjaldskrá
Grunnatriði rannsóknar: Ferritín er geymsluform járns, myndað úr apoferritíni og ferrihydroxíði. Ferritín er að mestu inni í frumum en örlítið fer út í plasma. Myndun á ferritíni eykst þegar járnmagn í líkamanum eykst.
Hide details for Sýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmdSýnataka, sending, geymsla og hvenær mæling er framkvæmd
Gerð og magn sýnis:
Sýni tekið í lithíum heparín glas með grænum tappa með geli (gul miðja) .
Litakóði samkvæmt Greiner
Sýni geymist í kæli í viku og í eitt ár við -20°C

Mæling er gerð alla virka daga.
Hide details for ViðmiðunarmörkViðmiðunarmörk

Börn <1 árs12-330 µg/L
Börn 1 - 6 ára7-60 µg/L
Börn 6 - 12 ára12-100 µg/L
Drengir 12 - 17 ára14-150 µg/L
Karlar >17 ára30-400 µg/L
Stúlkur 12 - 17 ára12-70 µg/L
Konur >17 - 50 ára15-150 µg/L
Konur >50 ára (eftir tíðahvörf)30-400 µg/L
Hide details for NiðurstöðurNiðurstöður
Túlkun
Sjúklingar sem fá háa bíótínskammta (>5 mg/dag) verða að láta a.m.k. 8 klst. líða frá bíótín inntöku þar til sýni er tekið að öðrum kosti má búast við falskri hækkun.

Hækkun: Járnofhleðsla (hemochromatosis), járngjöf. Ferritín hækkar við bólguviðbrögð í líkamanum.

Lækkun: Ferritín lækkar við járnskort.
Hide details for HeimildirHeimildir
Tietz Textbook of Clinical Chemistry and Molecular Diagnostics. Fifth Edition. Elsevier Saunders. 2012.

Ritstjórn

Ingunn Þorsteinsdóttir
Fjóla Margrét Óskarsdóttir

Samþykkjendur

Ábyrgðarmaður

Ingunn Þorsteinsdóttir

Útgefandi

Ingunn Þorsteinsdóttir

Upp »


Skjal fyrst lesið þann 05/27/2011 hefur verið lesið 10137 sinnum
OSZAR »